Domczar

Forsmíðuð baðherbergi breyta íslenskum byggingariðnaði
Undanfarin ár hefur íslenskur byggingarmarkaður orðið var við aukningu í innleiðingu nýstárlegra byggingaraðferða en þar á meðal hafa forsmíðuð baðherbergi verið áberandi. Þessar forsamsettu, tilbúnu einingar, eru að ryðja sér til rúms þar sem byggingaraðilar eru í auknum mæli að átta sig á hagkvæmni þess að nýta þessa lausn án þess að neinu sé fórnað í gæðum. Forsmíðuð baðherbergi eru framleidd í stýrðu verksmiðjuumhverfi og eru afhentar á byggingarstað tilbúnar til uppsetningar. Einingarnar eru flísalagðar og innihalda allar hefðbundnar baðherbergisinnréttingar, tæki, pípulagnir og rafmagn. Þessi „plug-and-play“ lausn verðu sífellt vinsælli, þar á meðal í íbúðarhúsum, hótelum, sjúkrahúsum og ýmsum tegundum atvinnuhúsnæðis.

Kostir í íslensku samhengi:

Skilvirkni og byggingarhraði:

Veðurskilyrði á Íslandi eru með þeim hætti að kostur getur verið að lágmarka byggingartíma á staðnum. Hægt er að setja forsmíðuð baðherbergi fljótt upp samanborið við hefðbundin baðherbergi og stytta þannig heildarbyggingartíma.

Gæðaeftirlit:

Framleiðsla á baðherbergjum í verksmiðjuumhverfi fylgir ströngu gæðaeftirliti sem erfiðara er að framkvæma á byggingarstað. Þetta stýrða umhverfi dregur úr hættu á göllum og tryggir stöðugan frágang á öllum einingum, sem er veigamikill þáttur fyrir stór verkefni.

Kostnaðarhagkvæmni:

Forsmíðuð baðherbergi reynast oft hagkvæmari m.t.t. kostnaðar en hefðbundnar byggingaraðferðir. Styttri byggingartími, lægri launakostnaður og minna efnistap stuðla að heildarsparnaði.

Sjálfbærni:

Í nútíma byggingariðnaði er aukin áhersla á sjálfbærni og umhverfisvitund. Forsmíðuð baðherbergi stuðla að sjálfbærni með betri efnisnýtingu og minni úrgangslosun. Þar að auki dregur stýrt framleiðsluferli úr umhverfisáhrifum sem venjulega tengjast hefðbundnum byggingarframkvæmdum.

Þróunin á Íslandi:

Innleiðing forsmíðaðra baðherbergja á Íslandi fer vaxandi en Íslendingar hafa verið nokkuð á eftir öðrum Evrópulöndum hvaða þetta varðar. Fleiri verktakar og þróunaraðilar átta sig á langtímaávinninginn þessarar byggingaraðferðar, sérstaklega fyrir verkefni þar sem herbergjaskipulag endurtekur sig eins og í hótelum og fjölbýlishúsum. Eftir því sem byggingarmarkaðurinn þróast mun það sama gerast hér á landi og annarsstaðar í heiminum þar sem eftirspurn eftir forsmíðuðum baðherbergjum fer hratt vaxandi.

Forsmíðuð baðherbergi frá Domczar henta íslenska markaðnum einstaklega vel:

Domczar býður upp á lausnir sem hentar íslenska byggingargeiranum sérstaklega vel, ekki bara þegar kemur að gæðum heldur einnig hvað flutning varðar og skilvirkni í uppsetningu. Domczar leggur mikla áherslu á að gengið sé frá einingunum fyrir flutning í þéttum, öruggum umbúðum og að auðvelt sé að flytja þær, jafnvel til afskekktari staða. Baðherbergin eru hönnuð til að passa inn í staðlaða flutningsgáma til að lágmarka flutningskostnað og auðvelda meðhöndlun og afhendingu.

Á markaði eins og Íslandi, þar sem stytting byggingartíma skiptir miklu máli vegna risjótts veðurfars og skorts á iðnaðarmönnum koma lausnir Domczar sterkar inn. Baðherbergin eru afhent fullbúin og tilbúin til uppsetningar, sem styttir verulega byggingartíma á staðnum. Þegar komið er á staðinn eru baðherbergin tengd við pípulagnir og rafkerfi hússins á nokkrum klukkustundum og flýta þannig verulega fyrir framkvæmdinn og draga úr launakostnaði.

Domczar áttar sig á fjölbreyttum þörfum íslenska markaðarins og býður upp á sérhannaðar valkosti sem henta ýmsum tegundum bygginga, allt frá íbúðarhúsnæði til ýmiskonar atvinnuhúsnæðis.

Á Íslandi, sem og annarsstaðar, er í auknum mæli lögð áhersla á sjálfbærni og vistvæn framleiðslu. Í framleiðsluferli Domczar er lágmörkun úrgangs og efnisnýting í fyrirrúmi, ólíkt hefðbundnum byggingaraðferðum þar sem sóun er oft mikil.

Forsmíðuð baðherbergi frá Domczar henta ekki eingöngu íslenska markaðnum þegar kemur að gæðum, tæknilegum lausnum og flutningi til landsins heldur smellpassa þau inn í þá þróun sem er að eiga sér stað á markaðnum í átt að nýstárlegum, sjálfbærum byggingarlausnum. Með því að samþætta forsmíðaðar einingar í inn í byggingarverkefni geta íslenskir framkvæmdaraðilar stytt byggingartíma, náð stöðugleika í gæðum, sparað kostnað og aukið arðsemi verkefnanna.

Forsmíðuð baðherbergi marka framfaraskref í byggingariðnaði og takast á við mörg af þeim vandamálum í aðföngum og umhverfismálum sem hefðbundnar byggingaraðferðir standa frammi fyrir. Eftir því sem framkvæmdaraðilar munu í auknum mæli nýta sér þessar lausnir á komandi árum munu þær gegna sífellt mikilvægara hlutverki í að móta framtíð íslensks byggingariðnaðar.

Artykuł Forsmíðuð baðherbergi breyta íslenskum byggingariðnaði pochodzi z serwisu Domczar.

Kostir forsmíðaðra baðherbergja
Hefðbundnar byggingaframkvæmdir eru háðar fjölmörgum þáttum sem erfitt getur verið er að stýra. Tafir geta átt sér stað á öllum stigum framkvæmdarinnar af ýmsum ástæðum. Algengt vandamál er að fá iðnaðarmenn á réttum tíma og slæm veðurskilyrði geta hægt á byggingarferlinu.

Forsmíðuð baðherbergi eru framleidd í stýrðu umhverfi óháð veðri og vindum. Framleiðsla og afhending á sér stað innan skilgreinds tímaramma og losar framkvæmdaraðilann við þá óvissu sem getur fylgt hefðbundnum baðherbergisframkvæmdum auk þess að spara tíma.

Hvernig hafa forsmíðuð baðherbergi áhrif á framkvæmdakostnað?

Einn fjölmargra kosta baðherbergiseininga er lægri framkvæmdakostnaður:

Framleiðsluferlið er óháð aðstæðum á byggingarstað – engar tafir.

Minni þörf fyrir iðnaðarmenn. Oft getur reynst erfitt að samtvinna vinnu múrara, rafvirkja, smiða og pípulagningarmanna þannig að vinna á baðherbergjum gangi vel fyrir sig. Með því að fela einum aðila framleiðsluna í formi forsmíðaðra eininga næst ekki bara fram tímasparnaður heldur einnig veruleg hagfræðing í starfsmannakostnaði.

Minni úrgangur og efnissóun. Þar sem framleiðslan fer ekki fram á byggingarstað minnkar úrgangur sem því nemur. Auk þess er lögð áhersla á lágmarks sóun í öllu framleiðsluferlinu með því að hámarka efnisnýtingu.

Hvað annað mælir með því að velja forsmíðuð baðherbergi?

Í dag eru flest einingabaðherbergi byggð utan um stálramma. Stálið býður upp á mikinn sveigjanleika þegar kemur hönnun og frágangi auk þess sem auðvelt er að uppfylla kröfur um byggingarstaðla. Stálið gerir heldur ekki kröfur um viðbótar smíðavinnu þegar kemur að því að klæða ytra byrgði eininganna og sparar því tíma og fjármuni.

Artykuł Kostir forsmíðaðra baðherbergja pochodzi z serwisu Domczar.

Einingaframleiðsla
Hugmyndin um einingasmíð í byggingariðnaði er ekki ný af nálinni. Hins vegar er sterk hefð á Íslandi fyrir hefðbundnum byggingaraðferðum og gjarnar litið á einingaframleiðslu sem nýjung. Verkefnunum fer þó ört fjölgandi enda hafa byggingaraðilar í auknum mæli verið að átta sig á kostum einingasmíði, bæði fyrir íbúðar- og atvinnuhúsnæði.

Tæknin

Eins og nafnið gefur til kynna eru einingahús byggð úr einingum. Einingarnar eru framleiddar innandyra í stýrðu umhverfi og fluttar frá verksmiðju á byggingarstað þar sem þær eru settar saman.  Framleiðslan er því óháð veðurskilyrðum sem gerir það að verkum að stöðugleiki í gæðum er meiri en með hefðbundnum byggingaraðferðum. Forsmíði styttir byggingartímann án þess að fórna neinu í endingu og gæðum.

Hönnun einingahúsa

Einingatæknin krefst aðeins öðruvísi nálgunar á hönnunarstigi en hefðbundnar byggingaraðferðir. Skipta þarf byggingunni í hluta sem samsvara forsmíðuðu einingum sem eru verksmiðjuframleiddar í 90% tilvika. Einingarnar eru svo fluttar á byggingarstað þar sem þær eru settar saman.

Einingasmíð bíður upp á þann möguleika að framleiða einingar með tilbúnum veggjum, bæði að utan sem innan, þannig að framkvæmdir á byggingarstað eftir samsetningu takmarkist við eftirfarandi vinnu:

Lagnatengingar

Viðbótarfrágang (spörslun, málun o.s.frv.)

Einingasmíð og gámar

Einingahús og gámabyggingar eru ekki sami hluturinn. Í gámasmíði er notast við skipagáma sem eru samtengdir til þess mynda byggingar af ýmsum stærðum og gerðum. Gámabyggingar geta  boðið upp á margvíslega hönnunar- og skipulagsmöguleika og hafa verið nýttar með góðum árangri. Í einingahúsum er notast við forsmíðaðar einingar með burðarvirki úr stáli, timbri og öðrum efnum.

Forsmíðaðar einingar má nýta í flestum byggingum

Einingasmíð er orðin mjög vinsæll byggingarmáti um allan heim enda má nýta þessa tækni við smíði ýmiskonar húsnæðis:

íbúðir,

opinberar byggingar og almenningsrými

Hótel og atvinnuhúsnæði

Á undanförnum árum hafa byggingaraðilar í auknum mæli samtvinnað hefðbundar byggingaraðferðir og einingasmíði. Þetta á einkum við um forsmíðuð baðherbergi sem hafa notið vaxandi vinsælda meðal þróunaraðila, einkum í hótel- og íbúðabyggingum.

Artykuł Einingaframleiðsla pochodzi z serwisu Domczar.

Val á flísum
Val á baðherbergisflísum er ákvörðun sem hefur áhrif á sjónræna og hagnýta þætti baðherbergisins sem og langtíma notagildi. Mikilvægt að huga að nokkrum þáttum sem hafa áhrif á hvernig fólk skynjar rýmið.

Hreinlætiskröfur á hótelbaðherbergjum eru miklar. Við val á innréttingum er mikilvægt velja liti og áferð sem auðvelda þrif og lágmarka sýnileika óhreininda.

Val á flísum fyrir hótel í háum gæðaflokki

Hótelgestum á líða vel í rýminu. Glæsileg húsgögn og húsmunir undirstrika gæði en á sama tíma má ekki gleyma þægindum og notagildi. Hreinlæti skiptir miklu máli en baðherbergið ætti ekki að líkjast sótthreinsaðri læknastofu. Hönnunin þarf að vera klassík og áhersla lögð á:

Notagildi

Afslappandi rými

Hreinlæti

Þegar kemur að litavali er oft góð hugmynd að velja frekar hlutlausa lit en fríska upp á litasamsetninguna með lausamunum og hlutum sem auðvelt er að skipta um án mikils tilkostnaðar.  Við mælum yfirleitt ekki með svörtum lit á hótelbaðherbergjum, sérstaklega á svæðum sem eru í beinni snertingu við vatn. Það er erfitt að viðhalda svörtum baðherbergisflísum þar sem óhreinindi geta orðið mjög sýnileg, jafnvel þótt ítrasta hreinlætis sé gætt.

Áferð flísa

Litur ekki eini þátturinn sem þarf að hafa í huga við val á baðherbergisflísum. Flísar með mattri áferð hafa orðið vinsælar á undanförnum árum og setja oft skemmtinlegan svip á baðherbergið. Hafa þarf í huga að þær geta hins vegar verið mjög viðhaldsfrekar.

Þegar kemur að flísum með mattri áferð er hagkvæm lausn að velja flísar sem líkja eftir náttúrusteini. Slíkar flísar er yfirleitt auðvelt að þrífa og þær henta vel á gólf þar sem þær eru stamar.

Annar valkostur þegar kemur að flísum sem líkja eftir náttúrusteini eru sérstakar gólfflísar með sleipivörn. Þessar flísar virka vel við sturtuklefa eða baðkör en kalla á meiri þrif þar sem sleipivörnin dregur í sig óhreinindi.

Artykuł Val á flísum pochodzi z serwisu Domczar.

Val á litasamsetningu
Litaval fyrir baðherbergi er háð persónlegum óskum viðskiptavinarins. Þó er mikilvægt að hafa í huga að tískusveiflur geta gengið fljótt yfir. Því er gott að velta fyrir sér hvernig litir og hönnun koma til með að standast tímans tönn.

Við litaval þarf að huga að stærð baðherbergisins. Tilmæli arkitekta eru eftirfarandi:

Ljósir litir virka best í litlu rými og láta það virka stærra.

Í stærri rýmum má velja dekkri og djarfari liti sem ættu þó ekki að vera ríkjandi.

Annað sem skiptir máli varðandi litaval:

Ríkjandi litaval og mynstur

Mínimalísk hönnun með svörtum, hvítu og gráum tónum er enn ríkjandi í baðherbergishönnun, klassískt útlit sem nýtur alltaf vinsælda.

Djarfari litatónar eins og flöskugrænn og dökkfjólublár hafa notið vaxandi vinsælda á undaförnum árum. Hættan er hins vegar sú þessir litir úreltist hratt og  því getur verið góð hugmynd að takmarka þá við afmörkuð svæði og hluti sem auðvelt er að skipta út eins og málaða veggi og lausamuni.

Klassísk nálgun borgar sig

Klassískir gráir tónar geta hljómað óspennandi en þetta eru litir sem standa alltaf fyrir sínu. Þeir gera þér kleift að fríska upp á baðherbergið án mikils tilkostnaðar.

Við mælum með klassískum litum sérstaklega ef ætlunin er að klæða gólf og veggi með flísum. Það að skipta út flísum er meiriháttar aðgerð sem oft tengist tímafrekum og kostnaðarsömum endurbótum.

Svartir litir á baðherberginu: Tíska eða klassík?

Undanfarin misseri hafa svartir litir notið vaxandi vinsælda, svartir vaskar, svört tæki, baðkör og sturtuklefar. Hótel og líkamsræktarstöðvar hafa leitt þessa þróun sem við höfum stutt við í okkar framleiðslu.

Svartar innréttingar fanga athygli og vekja hughrif um stílhreina hönnun. Hins vegar eru þær ekki alltaf hagkvæmar þar sem óhreinindi eru sýnilegri en á ljósari innréttingum. Þegar litasamsetning fyrir baðherbergi er valin er oft skynsamlegt að huga að jafnvægi í notagildi, útliti og hagkvæmni í rekstri, sérstaklega ef um er að ræða hótel og atvinnuhúsnæði.

Artykuł Val á litasamsetningu pochodzi z serwisu Domczar.

Hvernig á að skipuleggja baðherbergi?
Að hanna baðherbergi getur verið krefjandi verkefni þar sem rýmið er yfirleitt tiltölulega takmarkað. Sníða þarf innra skipulag að þörfum notandans og þeim takmörkunum sem rýmið bíður upp á. Ef um er að ræða baðherbergi fyrir hótel og atvinnuhúsnæði þarf t.a.m. að uppfylla ákveðnar hreinlætiskröfur.

Baðherbergi í fjölbýlishúsum

Að blanda saman notagildi og góðri hönnun er alltaf áskorun, sérstaklega ef baðherbergin eru lítil. Baðherbergi í fjölbýlishúsum þjóna oft einnig sem þvotta- og þurrksvæði sem þýðir að í takmörkuðu rými þarf að koma fyrir:

Baðkari/sturtu

Vaski

Þvottavél og þurrkara eða annaðhvort þvottavél eða þurrkara, ásamt

klósetti. Hvernig er þá best koma öllu þessu fyrir?

Í litlu rými geta hornsturtuklefar verið hentug lausn. Upp á síðkastið hafa sturtuklefar með fellanlegum hurðum notið vaxandi vinsælda. Eftir að hurðarnar hafa verið lagðar saman taka þær minna pláss svo rýmið nýtist betur. Önnur lausn til að nýta rými betur er að hafa þurrkarann ofan á þvottavélinni.

Sérbýli

Sérbýli geta boðið upp á meiri möguleika varðandi baðherbergisskipan enda oft fleiri en eitt baðherbergi í húsinu sem geta gengt mismunandi hlutverkum. Auk þess er yfirleitt ekki þörf á að koma fyrir þvottavél og þurrkara á baðherberginu þar sem þvottahúsið gegnir því hlutverki. Sveigjanleiki í hönnun er því oft meiri.

Hótel

Sem framleiðandi höfum við lokið við fjölda verkefna fyrir hótel og atvinnuhúsnæði. Við hönnun slíkra baðherbergja skiptir máli að þau séu:

Falleg

Vel skipulögð

Auðveld í þrifum

Walk-in sturtuklefar hafa notið mikilla vinsælda, hvort sem er á hótelum, heimilum eða líkamsræktarstöðvum, enda þægilegir í þrifum. Ef verkefnið kallar á aðeins meiri lúxus þola nútíma baðkör orðið mikinn ágang án þess að láta á sjá og þau er jafnframt auðvelt að þrífa.

Á hótelbaðherbergjum er mikilvægt að huga lýsingu og innstungum svo auðvelt sé fyrir gesti að stinga í samband og hlaða ýmiskonar raftæki. Þess vegna er mikilvægt að tryggja að innstungur séu staðsettar innan seilingar frá speglinum og við hillur eða innréttingar þar sem hægt er að koma tækjum fyrir í hleðslu.

Þú getur alltaf leitað aðstoðar innanhússhönnuðar við að skipuleggja baðherbergið og samræma fagurfræðilega og hagnýta eiginleika þess.

Artykuł Hvernig á að skipuleggja baðherbergi? pochodzi z serwisu Domczar.